Leit

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klúður :)

27. september 2008 klukkan 17:23
Ég hitti á Heiðu í gærkvöldi, hún og Binni buðu mér í mat, ég borðai mig pakksadda af fisk og meðlæti, rosalega gott ! Hlæjandi Takk fyrir mig.
Við ætluðum að vera íkt duglegar og föndra myndaalbúm fyrir brúðarmyndirnar mínar, en það gékk eitthvað brösulega að senda þær í framköllun.
Svo við tókum á það ráð að kaupa bara ljósmyndapappír og prenta þær bara úr sjálfar, hahaha, það var semsagt ekki að ganga vel hjá okkur.

Myndirnar voru grænar og ekki í miðjunni, það vantaði alltaf hluta af myndinni, Hlæjandi ein myndin var t.d bara af hárinu á Hauk.

Svo við ákváðum að fara með þetta til pabba hennar Heiðu, sem gaf mér góð ráð, og við enduðum á að bíða svo með þetta. Brosandi



Við erum búin að fá móttilboð við tilboðinu sem við gerðum í húsið .. og nú ætlum við að gera tilboð á móti móttilboðinu, (haha pínu ruglingslegt Ullandi) vona að þeir taki því !

Gerðum tilboð

25. september 2008 klukkan 14:29
Jæjaaa ..

Við gerðum tilboð í hús í gær, nú er bara að bíða og sjá hvað kemur útúr því.
Ég á svo sem ekki von á að þeri taki fyrsta tilboðinu hjá okkur... en það kemur í ljós vonandi í dag, síðasta lagi um hádegið á morgun.
Brosandi

Hvað skólann varðar þá er ég á 3. önn .. og hefur bara gengið rosalega vel, ég kom sjálfri mér á óvart, því ég hef aldrei verið mikil skólamanneskja í mér.
Ég er að fara að byrja í vinnustaðanámi.. og verð á deild A6, sem er lungnadeild.
Mig kvíður mikið fyrir það, en er samt ponku spennt líka.

Á síðustu önn var ég á Vífilstöðum, en það er öldrunarstofnun, ég lærði heilmikið á þeim tíma sem ég var þar. (Og fékk líka 10 í einkunn fyrir það, naananananaaaanaaa.)
Ullandi *mont*

Well well... ætli maður verði ekki að drífa sig í lærdóminn aftur..
Verð að viðurkenna að ég hef verið aaansi löt af því sem komið er af þessari önn, verð að fara að taka mig á.
Hissa


Þangað til næst ...

Kv. Duglegi bloggarinn .... enþá...
Glottandi






Bimbo
1 athugasemd

hahaha .. þetta er enþá til !! :) :)

24. september 2008 klukkan 14:00

Hahaha ... ég varð að ath hvort þetta væri enþá til.. og viti menn.. þetta er hérna enþá. :)

Ég hef ekki farið hingað inn í laaaangann tíma.. einsog sést kannski á bloggfærslunum. :P

En fyrst ég er nú komin hérna ákvað ég að henda inn einni færslu.. bara til gamans, ég hef nú aldrei verið góður bloggari. :P

Allt fór vel í brúðkaupinu og sögðum við bæði já, haha.. einsog þið vitið sem voruð þarna.
Allt gegnur voða vel hjá okkur og erum við íkt hamingjusöm. :P

Við erum núna að huga að þvi að kaupa okkur í Hveragerði, gerum tilboð á eftir í eitt þarna sem okkur langar í.
Það verður gaman að hallda jól í nýju heimili. :D

Vóóó .. look at the time ..
Verð að þjóta.. myndataka og skóli. :D

Kannski kemur meira seinna.. maður veit ekki. :D

Bimbo's out.

14. maí 2007 klukkan 13:38
Allar mömmur til hamingju með daginn í gær.

Við fórum austur á föstudaginn og vorum þar til sunnudags. Við Beta vorum allann laugardaginn að föndra skraut fyrir brúðkaupið.. Haukur kom svo og hjálpaði okkur í restina. Þetta tók rosalegann tíma.. eins gott að þið eigið eftir að taka eftir þessu hjá okkur. ÖskrandiUllandi

Amma mín hefði átt afmæli í gær svo að öll föður fjölskyldan hittist í perlunni og fékk sér kaffi saman.. semsagt afi, börnin hans og svo börnin þeirra. Þetta var rosalega gaman.. við hittumst orðið svo sjaldan svona öll.

Tíminn er alltof fljótur að líða ... ég er að fara á sjóinn eftir viku og mér finnst ég eiga eftir að gera svo mikið ... ! Hissa Þetta á nú allt eftir að smella saman held ég nú samt ... vona það allavega ..

Boðskotin fara að verða klár.. ætluðum að senda þau í prentun fyrir helgi en þurfum að laga þau aðeins.. og núna hefur talvan hjá blla hrunið ... svo ég veit ekki alveg hvenær við getum sent þau í prentunina .. 

Ætla að reyna að nota daginn í skó leit .. þarf að fara að drífa mig í að finna skó svo að ég geti farið að ganga þá til.

Blizzz ..

11. maí 2007 klukkan 14:16
Við gleymum venjulega yfirsjónum okkar, þegar að engir aðrir sjá.

11. maí 2007 klukkan 13:04

Ætla að reyna að hafa þetta stutt ..

Ég hitti Sabbó á laugardaginn síðasta.. Elva átti afmæli svo að ég hitti á hana þar, svo enduðum við á glaumbar, kreiiisíí gaman æ tell jú ! Glottandi

Undankeppnin í júróvisjon var í gær og komst okkar maður því miður ekki áfram ..Fýldur Megnið af krúinu hittist heima hjá mola og svo stoppuðum við í smá stund heima hjá Eyþór áður en við fórum á hverfisbarinn þar sem við eyddum restinni af kvöldinu við að hlusta á Gunna Óla og Sjonna syngja og glamra á gítara. Hlæjandi 
Litla fyllibittan ég ákvað samt að vera edrú og láta Hauk sjá um drykkjuna í þetta skiptið.

Við förum svo austur í dag til tengdamömmu og verðum þar yfir nótt allavega.. og tökum mömmu mína og pabba með... held að þau ætli að taka yngsta gerpið með líka . Ullandi

Svo eru kosningar á morgun.. og svo endum við örugglega í bænum aftur... gæti skeð að ég verði bara edrú aftur.. það er svo mikið ódýrara og svo engin þynka daginn eftir sem er lúxus.Ullandi

.. Bimo's out ..

05. maí 2007 klukkan 19:58

UllandiHlæjandiAnnað blogg á stuttum tíma.. ! Ekkert smá dugleg. Ullandi

Ég og mamma fórum saman á glaumbar að hlusta á Vigni og Hreim spila og sötruðum nokkra bjóra saman á fimmtudagskvöldinu, Beta kom líka og hitti á okkur þarna og sat með okkur megnið af kvöldinu. Brosandi Svo komu pabbi og Hukur og sátu með okkur í smá stund á meðan að við vorum að klára drykkina okkar.
Skemmti mér mjög vel þetta kvöld. Hlæjandi Þetta er alveg orið mitt "thing" að fara á fimmtudögum að drekka bjór.. skemmtilegt að sita bara og hlusta á gítarspil og söng svona tl tilbreytinga.

Í gær skaust ég til hveragerðar með litla bróðir minn og eyddi svo kvöldinu heioma hjá mömmu og pabba, við byrjuðum á að spila ... leonard minnir mig að það heiti ... og svo fórum við Sammi og Kristinn í gítar-hero. Ég get ekki sagt að ég sé mjög góð í honum, en þetta er mjög skemmtilegur leikur.

Núna er ég heima hjá mömmu og paba að bíða eftir kjötinu sem er verið að grilla.. ... slef.. Ullandi

Svo var Sabbó mín var a koma í bæinn áðan. (jeijj) Hlæjandi Ég ætla að reyna að hitta á hana í kvöld. Koss

... jæja maturinn er að verða til ... 

                                                   .. Later ..

02. maí 2007 klukkan 20:28
Halló halló ..

Ég veit aldrei hvað ég á að skrifa hérna... veit ekki afhverju ég er að reyna að vera með svona síðu.. sýnist þetta ekki vera mín deild.

Ég er búin að vera í löngu fríi núna. Ég týndist í sjónum ásamt Dóru á þyrluæfingu í einum túrnum og náði mér í eitt stykki lungabólgu við það .. en er orðin frísk á ný og með ömurlegt þol.

Síðustu vikur hef ég bara verið í brúðkaups-undirbúningnum.. það er heilmikil vinna skal ég segja ykkur ! Hissa Miklu meiri vinna en ég helt. En þetta er allt að skríða saman.. vonandi get ég gefið upp link á síðuna fljótlega sem verður tengd brúðkaupinu.

Ég er að fara að hætta á sjónum fljótlega.. ætla að hætta í sumar þegar að týr fer í stopp... svo að ég á 2 túra eftir.. og ætla að reyna fara í skóla í haust á hársnyrtibraut. Svalur

Annars er voða lítið að frétta af mér annað en veikindi og brúðkaupsstúss.. Óákveðinn Vildi að það væri meira.

Kristinn bróðir minn er á spítala.. búinnað vera það í 6 daga og á allavega 1-2 eftir í viðbót. Þið sem eruð að vellta því fyrir ykkur hvað skeði.. þá slasaði hann sig í vinnunni sinni. Hann er að vinna í álveri og var að labba yfir pall sem hrundi undan honum og hann lenti með fótinn sinn í 1000°c heitann pott og brendist illa. Hann fór með sjúkrabíl á spítalann með 3ja stigs bruna og fór í aðgerð fljótlega eftir að hann kom þar sem tekin var húð af lærinu hjá honum og sett á löppina hans.
Honum líður ágætlega núna og bíður bara eftir að komast heim af spítalanum. Hlæjandi

Umm ... jah .. ég tók þátt í tískusýnningu 26.apríl, vvið haukur vorum módel fyrir Betu systur hans sem heppnaðist bara mjög vel.. þetta var rosalega gaman og ég væri alveg til í að gera þetta aftur.. var búin að gleyma hvað það er gaman að sýna á svona sýningum. Ullandi

Ætla ekki að hafa þetta lengra.

Bimbo - still alive....

Brúðarkjóllinn fundinn !

19. janúar 2007 klukkan 20:52
Jæja gott fólk .. ég er búin að ákveða mig í kjóla valinu, og get þá farið að huga að öðru. Hlæjandi 
Ég panta hann á eftir eða á morgun .. (bara þegar að haukur er ekki nálægt mér.)
Fannst ég verða að deila þessu með ykkur .. Ullandi

Smá blogg.

17. janúar 2007 klukkan 02:21

Hversu erfitt er að velja brúðarkjól !?!?! Ég er búin að máta yfir 20 kjóla og er ekki búin að ákveða mig enþá. En er samt búin að þregja valið niður í 2 kjóla og er markmiðið mitt er að vera búin að velja áður en að næsta vika byrjar, þannig að ég geti hringt í leiguna á mánudaginn og látið taka kjólinn frá fyrir mig.
En ég er að fara að gifta mig í júlí eins og flest ykkar ættu að vita. Þetta er feikna mikið verk sem tengist þessu og ég hef ekkert ofboðslega mikinn tíma þar sem ég er alltaf á sjónum líka, en þetta er rosalega gaman. Ullandi

Ég hefði átt að fara útá sjó í fyrramálið en fer ekki þar sem litla stelpan ég er lasin. Svo ég verð bara heima að láta kallinn minn hjúkra mér.

Well.. ég er að farast úr hungri, þannig að ég ætla að fá mér eitthvað að borða.

Bææjóóó
  ! Koss